Það stóð til að hafa sameiginlegan gróðursetningardag þriðja laugardag í ágúst. Þar sem hægt gengur að gera plöntur klárar til gróðursetningar þá næst ekki að hafa okkar dag á þeirri dagsetningu og því verðum við að fresta plöntudeginum okkar. Það er ekki verið að fella hann niður og það er gert ráð fyrir að hann verði í september. Það verður þá annað hvort fyrsta eða annan laugardag í september.