Aðalskipulag Mýrdalshrepps var frágengið og gefið út síðasta sumar, sjá umfjöllun á okkar vef.
Deiliskipulagið fyrir Fellsmörk er áfram í vinnslu hjá Skógræktarfélaginu og 12. janúar síðastliðinn var tekin fyrir hjá sveitarfélaginu, umsókn Skógræktarfélagsins um formlegt leyfi til að vinna deiliskipulagið og má þá gera ráð fyrir að það fari í formlega kynningu í framhaldi af því. Nánar má sjá þetta á vef Mýrdalshrepps, fundargerð Skipulags- og umhverfisráðs.