Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn
24.1.2008
Staður: |
Brekkubær við Hafravatn, Mosfellsbæ
|
Tími: |
24. jan. 2008, kl. 20:00 – 22.00
|
Viðstaddir: |
Hannes Siggason (HS) formaður
Frá Heiðarbraut: Sigrún María Kristinsdóttir (SMK)
Frá Gilbraut: Einar Kristjánsson (EK)
Frá
Króki:
Hjalti Elíasson (HE)
Frá Hólsbraut: Kjartan Kárason (KK) |
Forföll boðuðu: |
Frá Keldudal: Auðunn Oddsson (AO)
|
Fjarverandi: |
Frá Hlíðarbraut:
Einar Ragnar Sigurðsson (ERS)
|
Dagskrá fundarins var svohljóðandi:
1) Fundargerð síðasta stjórnarfundar (Umsj: Ritari /
EK)
2) Næsta skref við gerð GPS-korta af landnemalóðum í Fellsmörk (Umsj:
HS)
3) Upplýsingar frá fulltrúa
Félags landnema á Fellsmörk í vinnuteymi Landgræðslunnar með umsjón
varnargarða við Klifanda (Umsj: HE)
******Kaffihlé******
4) Fréttir af stjórnarstörfum SR (Umsj. HE)
5) Heimasíða félagsins (Umsj.
ERS)
6) Önnur mál (Allir)
1
Fundargerð síðasta stjórnarfundar.
Fundargerðin var lesin upp (EK) og samþykkt og
undirrituð af fundarmönnum. Fundargerð vinnufundar stjórnar, sem var
haldinn 10. jan. 2008, afgreidd með sama hætti.
2
Næsta skref við gerð GPS-korta af landnemalóðum í Fellsmörk.
SMK hélt fund
laugardaginn 19/1 '08 með landnemum Heiðarbrautar. Farið var yfir
stöðuna vegna GPS-mælinga en engar ljósmyndir, sem sýna legu spildnanna,
undirritaðar. Verður annar fundur haldinn. Ákveða þarf spildu Sveins
Björnssonar en eitthvað vantar upp á að hún nái einum hektara.
Nokkur
umræða varð á stjórnarfundinum um stækkun landnemaspildna umfram einn
hektara. Komu fram efasemdir (EK) um það hvort rétt væri að landnemar
teygðu lönd sín umfram það sem upphaflegar mælingar með hælum sýna. Dæmi
um slíkt í Heiðarbraut og víðar.
HS
dreifði á fundinum uppfærðum ljósmyndum af brautunum, sem sýna stöðu
hnita eftir vinnufundinn frá 10. janúar, unnar af Elínu Erlingsdóttur
hjá Landnotum. HE mun koma myndum til Jóns Þórs landnema í Dalbraut og
Auðuns Oddssonar til þess að unnt sé að samþykkja þær með undirritun. HS
skilar myndum til ERS.
3
Upplýsingar frá fulltrúa Félags landnema á Fellsmörk í vinnuteymi
Landgræðslunnar með umsjón varnargarða við Klifanda.
HE hitti Gylfa Júlíusson, sérfræðingi Landgr., nýlega og ræddi við hann
um framhald málsins, þ.e. styrkveitingu til aðgerða vegna vatnavaxta á
Fellsmörk. Svæðið verður skoðað með vorinu, væntanlega með þátttöku
Sigurjóns Eyjólfssonar í Eystri-Pétursey og reynt að átta sig á aðstæðum.
Enn er allt óljóst um það hvort fjármagn til aðgerða fæst.
4 Fréttir af stjórnarstörfum SR.
Engar
fréttir er að færa nú í janúar (starfsemin um jól og áramót snerist að
mestu um jólatrésölu og mál henni tengdum). Verður stjórnarfundur hjá SR
í byrjun febrúar.
5 Heimasíða félagsins.
Þessi liður féll niður þar eð ERS var fjarverandi
6. Önnur mál.
HS afhenti gjaldkera félagsins KK bréf frá skattayfirvöldum um
framtalsskyldu félagsins og bað hann taka til athugunar og afgreiðslu..
Fundi slitið kl. 22.00.
Fundargerðina ritaði Einar Kristjánsson
Dreifing: Stjórn félagsins,
; Heimasíða félagsins
|