TIL BAKA
----------------------
SÉRSTAKT EFNI
Erindi Valdimars af
aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs
Fuglalíf á Fellsmörk
Panoramamyndir
----------------------
FLÝTILEIÐIR
Félagatal
Fundargerðir
Vegir og slóðar
Lönd á
Fellsmörk (GPS) |
|
|
Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn 6.5.2004
(Fimmti fundur stjórnar veturinn 2003/2004, haldinn hjá Einari
Kristjánssyni)
Mættir: Auðunn Oddsson, Einar Kristjánsson, Einar Ragnar Sigurðsson, Hjalti
Elíasson, Kjartan J. Kárason, Magnús Jóhannesson og Sveinn
Björnsson.
Gestur fundarins var Hannes Siggason.
Helstu atriði úr fundargerð:
- Plöntudagurinn:
Hannes hefur rætt við Einar Gunnarsson hjá Skógræktarfélagi Íslands
og fengið staðfest að plönturnar verði tilbúnar til afgreiðslu
í byrjun júní. Til greina kemur að hafa plöntudaginn þann 12. eða
þann 19. júní. Endanlega dagsetning verður ákveðin þegar nær
dregur.
- Drög
að samstarfssamningi um ræktun landgræðsluskógar:
Farið var yfir samninginn og ákveðið að ERS mundi ræða nánar
nokkur atriði við Helga Gíslason hjá SR.
- Flutningur
á heimili félagsins: Heimili Félags
landnema í Fellsmörk er skráð í Fossvogsdal. Ákveðið var að
flytja það til Skógræktarfélags Reykjavíkur við Elliðavatn.
- Lagfæring
á varnargörðum: Í framhaldi af tölvupósti
sem kom frá Helga Gíslasyni (SR) þá var ákveðið að reyna að
ýta á Landgræðsluna með að lagfæra varnargarðana á austursvæðinu.
- Aðalfundur:
Ákveðið var að hafa aðalfundinn þann 25. maí. SR getur ekki hýst
fundinn og mun Kjartan athuga með að fá sal hjá Ferðafélagi Íslands.
Framkvæmdastjóra SR og stjórnarformanni verður sent boðsbréf og
tekið fram að aðrir stjórnarmenn séu einnig velkomnir. Skv. ábendingu
frá SR var ákveðið að reyna að fá Hrefnu Jóhannesdóttur skógfræðing
til að handa fræðsluerindi á aðalfundinum.
-
Drög
að lýsingu á kostum varðandi landmælingar og þinglýsingu:
Farið var yfir drögin og varð talsverð umræða um þá kosti sem
þar koma fram. Einar Ragnar mun hafa samband við Svein sveitarstjóra
í Vík, eins og ákveðið var á síðasta fundi, og ganga úr
skugga um að báðir kostirnir séu raunhæfir. Hann mun einnig
spyrjast fyrir um það hvaða áhrif hugsanlegar breytingar á útlínum
skógræktarreita hafi á hið svokallaða deiliskipulag svæðisins.
Í framhaldi af þessu verður ákveðið hvort gera þarf breytingar
á drögunum.
|
|
|
|