UM FELLSMÖRK

STAÐHÆTTIR

LANDGRÆÐSLU
SKÓGUR

MYNDIR

FÉLAGIÐ

Félagatal

Stjórn

Fundargerðir

Lög félagsins

Ýmis gögn  Fellsmerkur

Meiri gögn

FRÉTTIR

TENGINGAR

SKJALASAFN

 TIL BAKA

 

----------------------
SÉRSTAKT EFNI

Erindi Valdimars af aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs

Fuglalíf á Fellsmörk

Panoramamyndir


----------------------
FLÝTILEIÐIR

Félagatal

Fundargerðir

Vegir og slóðar

Lönd á Fellsmörk (GPS)

 

  

     

Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn 13.6.2006

(Fimmti fundur stjórnar Fellsmerkur veturinn 2005-2006, haldinn hjá Magnúsi Jóhannssyni)

Mættir: Auðunn Oddsson, Einar Kristjánsson, Einar Ragnar Sigurðsson, Hjalti Elíasson, Kjartan Kárason og Magnús Jóhannesson
Forföll:  Sveinn Björnsson

Helstu atriði úr fundargerð:

  1. Samningur um yfirtöku rekstrarins:  Farið var yfir stöðu mála.  Lítið hefur miðað frá síðasta fundi.  Einar Ragnar mun áfram reyna að þoka málinu áfram.  Bréf verður sent til félagsmanna þar sem málið verður kynnt.  Reynt verður að ná samkomulagi fyrir aðalfund félags landnema sem var ákveðinn í fyrstu viku septembermánaðar.  Úr því ekki náðist að hafa aðalfund í maí eins og til stóð þykir eðlilegast að fresta honum til hausts.  Bæði er að eki þykir fært að hafa aðalfund núna í byrjun sumars þegar félagsmenn eru margir farnir í sumarfrí og einnig er í raun ekki hægt að leggja samkomulag fram fyrir fundinn eins og til stóð.

  2. Landgræðsluskógasamningar og plöntudagur:  Plöntudagurinn verður 24. júní og er orðið öruggt að trjáplöntur berast í tæka tíð.  Samningur um Fellsmörk er ekki tilbúinn og er Skógræktarfélag Íslands enn semja við Skógræktarfélag Reykjavíkur.  Ekki fullljóst hvar þær samningaviðræður standa.

  3. GPS mælingar:  Einar Ragnar er búinn að fara yfir og skoða þær mælingar sem gerðar voru í Hlíðarbrautinni sumarið 2004.  Mælingin er ekki fullnægjandi þar sem nokkrir punktar voru ekki mældir.  Eins þá lítur ekki út fyrir mælt hafi verið í samræmi við óskir landnema á brautinni og eru löndin allt frá því að vera 6.000 fm upp í 12.000 fm en öll lönd eiga að vera því sem næst 10.000 fm.  Ljóst er að fara þarf yfir hvernig löndin hafa verið skilgreind þannig að hægt verði að ná því markmiði að allir landnemar sitji við sama borð.

    Gert er ráð fyrir að fulltrúar hverrar brautar sjái til þess að hælar verði yfirfarnir og mælingar geti þá farið fram núna í sumar.


fundargerð skráð af Einari Ragnari Sigurðssyni

 

 

 

 

 

 

2018-2019

2016-2018

2015-2016

2014-2015

2013-2014

2012-2013

2011-2012

2010-2011

2009-2010

2008-2009

2007-2008

2005-2007

2004-2005

2003-2004

2002-2003

 

Facebook síða Fellsmerkur


ÞETTA ER GAMLI VEFUR FELLSMERKUR

Þessum hluta vefsins hefur ekki verið viðhaldið eftir mars 2023.

Nýr vefur er hér: https://www.fellsmork.is/


LUMAR ÞÚ Á EFNI?

Landnemar og aðrir sem luma á efni sem tengist Fellsmörk eru hvattir til að senda það til félagsins svo það komist á vefinn.  Sérstaklega er óskað eftir myndum í hóflegu magni sem m.a. sýna hvernig ræktunarstarfið gengur.

Sendist til umsjónarmanns vefsins á netfangið eragnarsig@gmail.com.